Meðhöndlun gegn Laxa- og fiskilús í Dýrafirði

October 21, 2023

Laxalús(Lepeoptheirus salmonis) og í minna mæli fiskilús(Caligus elongatus) eru með stærstu áskorunum í nútíma laxeldi. Almennt séð er staðan á Vestfjörðum góð þegar kemur að laxa-og fiskilús. Þar er helst að þakka náttúrulegum aðstæðum ásamt lyfjalausum forvörnum, svo sem lúsapilsum og lífrænum lúsavörnum(hrognkelsaseiði). Þrátt fyrir góða stöðu geta komið upp þær aðstæður að óæskilegt magn lúsa mælist í kvíastæðum. Lús og þá sérstaklega laxalús í miklu magni getur haft neikvæð áhrifa á vöxt laxfiska, þá getur hún valdið sárum á uggum og hreistri sem getur aukið líkur á sýkingum hjá eldisfiski. Það er því til mikils að vinna að halda lús í skefjum á eldissvæðum.

Þegar upp koma aðstæður sem þessar sækir Arctic Fish um leyfi til lyfjameðhöndlunar til Matvælastofnunar. Fiskisjúkdómanefnd tekur málið fyrir metur með tilliti til umhverfisskilyrða, fiskistærðar, stöðu lúsasmita og væntanlegrar þróunar á svæðinu. Allar umsóknir um notkun lyfja gegn Laxa-og fiskilús má finna undir fundargerðir Fisksjúkdómanefndar á heimasíðu Matvælastofnunar (https://www.mast.is/is/um-mast/nefndir-og-rad/fisksjukdomanefnd).

Nú ber svo við að meðhöndla þarf gegn lús á kvíastæðum okkar við Haukadal og Eyrarhlíð í Dýrafirði.

Áætlaður meðhöndlunartími er eftirfarandi:

Haukadalur frá 20.10.23 þar til meðhöndlun er lokið.

Eyrarhlíð frá 20.10.23 þar til meðhöndlun er lokið.

Kvíastæðin verða merkt með gulu flaggi meðan á meðhöndlunartíma stendur í samræmi við ASC vottun Arctic Sea Farm.

Lyfjameðhöndlun verður með efninu SliceVet lúsalyfi (Emamectin benzoat) Efnið er vel þekkt og er löng reynsla á því í fiskeldi erlendis. Lyfjastofnun Íslands gerir ekki kröfu á biðtíma fyrir slátrun, sé ekki meðhöndlað oftar en einu sinni á seinstu 60 dögum eldistíma, enda sé öruggt að hámarks lyfjaleyfar í vefjum (e. Maximum Residue Limit / MRL) séu undir ásættanlegum gildum fyrir daglega inntöku (e. Acceptable Daily Intake / ADI).  Ekki eru þekkt neikvæð heilbrigðis áhrif af efninu á lokavöru.

Related Posts