Í viku 48 mun Arctic Fish í samráði við Matvælastofnun meðhöndla með efninu Salmosan® (Azamethiphos) á eldisvæðinu Eyrarhlíð.
Efnið er vel þekkt og er góð reynsla á því í fiskeldi erlendis. Lyfjastofnun Íslands gerir kröfu á 10 daggráður (dagur x °C) í biðtíma fyrir slátrun. Salmosan er baðlausn og því eru áhrif efnisins á eldisdýr hverfandi og ekki eru þekkt neikvæð heilbrigðis áhrif af efninu á lokavöru.
Kvíastæðin verða merkt með gulu flaggi meðan á meðhöndlunartíma stendur
Fiskisjúkdómanefnd hefur heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.
Allar umsóknir um notkun lyfja gegn Laxa-og fiskilús má finna undir fundargerðir Fisksjúkdómanefndar á heimasíðu Matvælastofnunar (https://www.mast.is/is/um-mast/nefndir-og-rad/fisksjukdomanefnd).
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ólafsson gæðastjóri Arctic Fish
gudmundur@afish.is