Við athugun starfsfólks Arctic Seafarm á kvíum félagsins í Kvígindisdal í Patreksfirði í dag komu í ljós tvö göt á kví númer átta. Götin lágu lóðrétt sitthvoru megin við svokallaða styrktarlínu, hvort um sig 20×30 cm. Búið er að loka götunum og er verið að skoða allar kvíar á svæðinu. Götin hafa verið tilkynnt til Fiskistofu og Matvælastofnun eins og reglur kveða á um og viðbragðsáætlanir hafa verið virkjaðar. Þrjú slysasleppingarnet verða lögð í dag sem verða dregin á morgun með eftirlitsfólki frá Fiskistofu. Í kví númer átta eru 72.522 fiskar, meðalþyngd hvers þeirra er um 6 kg og vegur fjöldinn því samanlagt um 440. Byrjað var að vinna fisk úr kvínni og var síðast farið með fisk í vinnslu úr henni 8. ágúst.
Tilkynning um aflúsun á eldissvæðinu Haukadalsbót
Í viku 47 mun Arctic Fish í samráði við Matvælastofnun meðhöndla með efninu AlphaMax® (deltamethrin) á eldisvæðinu Haukadalsbót. Efnið er...