Tilkynning um aflúsun á eldissvæðinu Haukadalsbót

október 2, 2024

Í fyrstu viku í október 2024 mun Arctic Fish í samráði við Matvælastofnun meðhöndla með efninu AlphaMax® (deltamethrin) á eldisvæðinu Haukadalsbót.

Efnið er vel þekkt og er löng reynsla á því í fiskeldi erlendis. Lyfjastofnun Íslands gerir ekki kröfu á biðtíma fyrir slátrun. Alphamax er baðlausn og því eru áhrif efnisins á eldisdýr hverfandi og ekki eru þekkt neikvæð heilbrigðis áhrif af efninu á lokavöru.

Kvíastæðin verða merkt með gulu flaggi meðan á meðhöndlunartíma stendur

Fiskisjúkdómanefnd hefur heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Allar umsóknir um notkun lyfja gegn Laxa-og fiskilús má finna undir fundargerðir Fisksjúkdómanefndar á heimasíðu Matvælastofnunar (https://www.mast.is/is/um-mast/nefndir-og-rad/fisksjukdomanefnd).

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ólafsson gæðastjóri Arctic Fish

gudmundur@afish.is

Related Posts

Atvik í landeldisstöð

Atvik í landeldisstöð

Fimmtudaginn 23. maí síðastliðinn átti sér stað bilun í búnaði í seiðaeldisstöð okkar í Norður-Botni í Tálknafirði sem olli því að vatn...