Á síðustu dögum hefur orðið vart við aukin afföll á laxeldissvæðum í Dýrafirði. Á þessum árstíma þegar að sjórinn er kaldur og vetrarverður gera vart við sig eykur það álag á laxinn.
Eftir óvenju gott sumar og haust með miklum vexti og litlum afföllum hafa afföll aukist og gætu þessar vikurnar farið í um 3% af lífmassa.
Umræddur fiskur er kominn í sláturstærð svo að slátrun frá Dýrafirði hefur verið flýtt til að koma í veg fyrir frekari afföll. Þaðan hefur verið slátrað um 1.200 tonnum það sem af er ári.